laugardagur, 13. desember 2008

Mikið að gera!


Eins og tryggir lesendur Obbosí hafa tekið eftir hefur ekki verið mikið um nýja pósta hér á síðunni undanfarið. Margvísleg verkefni hafa haldið okkur uppteknum við annað; ein hefur hafið nám samhliða vinnu, önnur er að koma eigin fyrirtæki á legg og þreifa fyrir sér í útlöndum og sú þriðja hefur ákveðið að fjölga í obbosí barnahópnum og er eftir því uppgefin þegar fullum vinnudegi er lokið. Við munum þó halda áfram að setja inn nýtt efni eftir því sem tækifæri gefast, og við vonum að lesendur okkar haldi áfram að líta við.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jiminn eini!!
Til hamingju!!
Þið eruð líka góð í þessu :)

(ég er nemi á leikskólanum hjá strákunum ykkar, þeir eru æðislegir!)
kv. Árný