þriðjudagur, 15. apríl 2008

Bill Gates og unglingarnir


Bill Gates hefur haldið fyrirlestur í bandarsískum gagnfræðaskóla, eða "high-school", um 11 hluti sem krakkar hafa ekki og munu ekki læra í skólanum. Hann talaði um hvernig pólitísk rétthugsun í kennslu skapar kynslóð fólks sem hefur enga raunveruleika tilfinningu og hvernig þetta getur orðið til þess að þau verði undir í hinum raunverulega heimi.

  1. Lífið er ekki réttlátt - reyndu að venjast því!
  2. Heiminum er sama um sjálfsímynd þína. Heimurinn væntist þess að þú áorkir einhverju áður en þú verðir ánægður með sjálfan þig.
  3. Þú munt ekki fá háar tekjur strax eftir gagnfræðaskóla. Þú verður ekki forstjóri fyrr en þú hefur unnið þig upp.
  4. Finnst þér kennarinn þinn vera strangur? Bíddu bara þar til þú færð yfirmann!
  5. Að snúa hamborgurum er ekki fyrir neðan virðingu þína. Afi þinn og amma áttu til annað orð yfir að snúa hamborgurum: Það var kallað tækifæri.
  6. Ef þú klúðrar einhverju er það ekki foreldrum þínum að kenna, svo hættu að væla yfir mistökum þínum; lærðu heldur eitthvað af þeim.
  7. Áður en þú fæddist voru foreldrar þínir ekki eins leiðinlegir og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað reikningana þína, þvegið fötin þín og hlustað á hversu cool þér finnst þú vera. Svo áður en þú bjargar regnskógunum gætirðu reynt að taka aðeins til hendinni í herberginu þínu.
  8. Það getur verið að skólarnir útskrifi nú bæði sigurvegara og tapara, en það gerir LÍFIÐ EKKI. Í sumum skólum eru ekki lengur gefnar falleinkunnir og þú munt fá eins mörg tækifæri og þú vilt til að finna rétta svarið. Þetta er ekki í NEINNI líkingu við NEITT í raunveruleikanum.
  9. Lífinu er ekki skipt í annir. Þú færð ekki frí allt sumarið og mjög fáir samstarfsmenn þínir hafa áhuga að hjálpa þér að finna sjálfan þig. Gerðu það í frítíma þínum.
  10. Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.
  11. Komið vel fram við nördana. Það eru allar líkur á að þeir verði yfirmenn þínir í framtíðinni.
Svona er lífið samkvæmt Bill Gates. Ég á ekki sjálf ungling en það mun koma að því. Þá getur verið að ég vilji líta aftur yfir þennan lista og sækja styrk þaðan. Eða hvað haldið þið, þið sem eigið unglinga?
PS Okkur hefur verið bent á að það hafi alls ekki verið Bill Gates sem hélt þennan fyrirlestur, heldur hafi það verið maður að nafni Charles J. Sykes sem skrifaði grein um þetta í San Diego Union-Tribune árið 1996. Lesið meira um þetta hér. Hver sem upphafsmaðurinn að þessum punktum var er mikill sannleikur fólginn í þeim og fyndist okkur sérstaklega áhugavert að heyra hvað ykkur sem eigið unglinga finnst um þá.
(Smellið á LESIÐ NÁNAR til að sjá alla greinina)



2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta er greinilega gáfaður maður!

Nafnlaus sagði...

Hef séð þetta einhverstaðar áður og get ekki annað en brosað. Því í kaldhæðninni er falinn sannleikur. Pínu súr, en réttur því hvað er skóli annað en verkfæri sem býr til winner and loosers.. og það er það sorglega við þetta....