fimmtudagur, 10. apríl 2008

Litlir puttar og innstungur

Börnum finnst fátt skemmtilegra en að kanna heiminn og eru innstungur eitt það áhugaverðasta sem þau finna innan veggja heimilisins. Við höfum leitað lengi að einhverju fyrirkomulagi sem væri öruggt þó svo að litlu krílin nái að grípa rafmagnssnúruna úr innstungunni. Í BYKO fundum við þessar snilldar öryggishlífar sem eru límdar í og haldast þó að barnið rífi rafmagnssnúruna úr sambandi.
Maður byrjar á að setja innstungu í götin sem eru á öryggishlífinni.
Snýr svo þangað til þau koma að götunum og fara í gegn þar næst tekur maður plastið af líminu
Stingur snúrunni í samband með hlífinni á.
Þrýstir henni fast í svo að öryggishlífin haldist örugglega og takið svo úr sambandi.
Og eins og má sjá á þessari mynd lokast fyrir innstunguna um leið og tekið er úr sambandi og því engin hætt að litlir puttar fari að pota í innstungurnar. Til að setja í samband setur maður innstunguna í götin og snýr upp og þá ætti hún að detta í.
Þessar öryggishlífar fást í BYKO og koma fimm saman í pakka.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært! Er einmitt í vandræðum með mína sem rífur allt úr sambandi og þá er ég svo hrædd um að hún geti stungið einhverju í innstunguna.

obbosí sagði...

sama hér, við vorum alltaf að hlaupa á eftir henni og setja töskur og dót fyrir innstungurnar.